top of page
18031591346089995_edited_edited.jpg

ÞJÓNUSTA.

Hér finnur þú yfirlit yfir það sem ég býð upp á – hvort sem þú ert að leita að sýnileikaráðgjöf, fundarstjórn eða hjálp við að koma draumaverkefninu af stað. Markmiðið mitt er alltaf það sama: að hjálpa þér að láta hlutina gerast.

Sýnileika-ráðgjöf.

Hvort sem þú ert einstaklingur, áhrifavaldur eða fyrirtæki – ég hjálpa þér að skilgreina hvað þú stendur fyrir og hvernig þú vilt koma því á framfæri. Ég legg áherslu á að gera sýnileika bæði náttúrulegan og markvissan, með aðstoð við allt frá stefnumótun til samfélagsmiðla.

viðburða-ráðgjöf.

Ég aðstoða við hugmyndavinnu, hönnun og framkvæmd viðburða – með skýrum tilgangi og góðri stemningu að leiðarljósi. Frá hakkaþonum til ráðstefna, ég styð við þig í að móta upplifun sem fólk man eftir.

Fyrirlestrar.

Ég held reglulega fyrirlestra og vinnustofur sem byggja á reynslu minni sem leiðtogi, talskona breytinga og stofnandi Gelluvinnustofunnar. Ég sameina verkfræðileg gleraugu við mannleg tengsl og býð upp á innsæi, verkfæri og innblástur fyrir hópa af öllum stærðum.

Almenn

ráðgjöf

Stundum dugar bara eitt gott samtal til að skýra næstu skref. Ég býð upp á persónulega og hagnýta ráðgjöf þegar kemur að skipulagi, breytingum eða  markaðsmálum. Ég hef einnig aðstoðað við átaksverkefni þar sem þétt utanumhald og skýr skilaboð skipta öllu máli. 

Fundar-stjórnun.

Þú getur bókað mig sem fundarstjóra fyrir viðburði, ráðstefnur, vinnustofur eða pallborð – þar sem ég legg áherslu á  stemningu og fagmennsku. Ég aðstoða einnig við skipulagningu og hugmyndavinnu fyrir áhrifaríka viðburði sem fólk man eftir.

Vinnustofur.

Ég hanna og leiði vinnustofur sem byggja á að dýpka tengsl, koma verkefnum af stað og skapa rými fyrir sjálfsskoðun. Gelluvinnustofurnar eru eitt dæmi – en ég aðlaga efni, nálgun og form að þínum hópi og markmiðum.

bottom of page